Kaldalon

Kaldalón hf. : Breytingar á skilmálum viðskiptavaka

Kaldalóni hefur borist tilkynning frá Arion banka og Kviku banka sem sinna viðskiptavakt með hlutabréf félagsins. Hafa þessir aðilar tilkynnt að þeir muni beita heimild í samningum sem heimila að víkja frá skilyrðum í óviðráðanlegum aðstæðum, er varðar verðbil og fjárhæðir á meðan slíkt ástand varir.

Nánari upplýsingar veitir Jónas Þór Þorvaldsson í síma 899-9705

Kaldalón hf. Árshlutareikningur fyrstu 9 mánuði ársins 2019

Kaldalón hf. hefur birt árshlutareikning sinn fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2019 sem samþykktur var af stjórn félagsins í dag, 12. desember 2019.

Hagnaður Kaldalóns hf. á tímabilinu nam 72,3 milljónum króna. Heildareignir félagsins námu 5,2 milljörðum króna og skuldir félagsins voru tæplega 1,2 milljarðar króna. Eigið fé félagsins var 4,06 milljarðar króna í lok tímabilsins.  Eiginfjárhlutfall Kaldalóns var 77,8% í lok tímabilsins.