Kaldalón hf.: Ný dagsetning hluthafafundar

Með tilkynningu þann 23. júlí síðastliðinn boðaði stjórn Kaldalóns til hluthafafundar í Kaldalóni hf. sem haldinn skyldi þann 30. júlí. Stjórn Kaldalóns hefur ákveðið að fresta fundinum og boða til hans að nýju.

Hluthafafundur Kaldalóns hf., kt. 490617-1320, verður haldinn fimmtudaginn 6. ágúst 2020, kl. 14:00, í höfuðstöðvum Kviku banka hf., Katrínartún 2, 105 Reykjavík,  9.hæð.

Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi liðir:

  1. Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins.
  2. Kosning og skipun stjórnar og varastjórnar
  3. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.

***

Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins:

Stjórn leggur til breytingu á gr. 4.1 á samþykktum félagsins og eru meginatriði tilögunnar tilgreind hér fyrir neðan.

Lagt er til að stjórn félagsins verði skipuð þremur til fimm mönnum og tveimur varamönnum. Núverandi grein 4.1. í samþykktum félagsins kveður á um að stjórnin sé skipuð þremur mönnum og einum varamanni.

Reykjavík, 29. júlí 2020

F.h. stjórnar Kaldalóns hf.

Þórarinn Arnar Sævarsson
stjórnarformaður

Deila frétt

Fleiri fréttir