Kaldalón hf.: Niðurstöður aðalfundar 2022

Eftirfarandi tillögur voru lagðar fyrir aðalfund Kaldalóns hf., sem haldinn var að Borgartúni 19, Reykjavík, föstudaginn 8. apríl 2022, kl. 16:00:

Ársreikningur félagsins 2021 og ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps félagsins á reikningsárinu

Ársreikningur félagsins 2021 var lagður fram til staðfestingar og samþykktur samhljóða. Tekin var ákvörðun um að greiða ekki út arð vegna rekstrarársins 2021.

Kosning og skipun stjórnar og varastjórnar

Fyrir fundinum lágu fyrir framboð frá fjórum einstaklingum í stjórn og varastjórn Kaldalóns hf. og þar sem önnur framboð bárust ekki var stjórn og varastjórn réttilega sjálfkjörin. Í stjórn félagsins voru kjörin Almar Þ. Möller, Gunnar Henrik Gunnarsson og Álfheiður Ágústsdóttir og í varastjórn Hildur Leifsdóttir. Eftir aðalfund var haldinn stjórnarfundur þar sem stjórn skipti með sér verkum og var Almar Þ. Möller skipaður stjórnarformaður.

Kjör endurskoðanda félagsins

Samþykkt var samhljóða að endurskoðendafélagið Pricewaterhousecoopers ehf. verði endurskoðandi félagsins fyrir komandi rekstrarár.

Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda

Samþykkt var samhljóða að þóknun til stjórnarmanna verði kr. 250.000 á mánuði, þóknun stjórnarformanns verði tvöföld þóknun stjórnarmanna og að þóknun til varamanna í stjórn verði kr. 75.000 fyrir hvern fund sem þeir sitja. Ekki verður greidd þóknun fyrir setu í undirnefndum stjórnar.

Starfskjarastefna félagsins

Starfskjarastefna félagsins, óbreytt frá starfskjarastefnu sem samþykkt var á hluthafafundi þann 16. desember 2021, var samþykkt samhljóða.

Deila frétt

Fleiri fréttir