Sjálfbærni
Jákvæð áhrif
Sjálfbærni, samfélagsleg ábyrgð, mannréttindi og umhverfismál eru mikilvæg í stefnu félagsins og við gerum ríkar kröfur til okkar sjálfra og samstarfsaðila okkar þegar kemur að þeim málaflokkum. Við virðum mannréttindi í hvívetna og stefnum að því að eiga góð samskipti við þau samfélög sem starfsemi félagsins nær til og að hafa góð áhrif á þau. Við förum ávallt að minnsta kosti að gildandi lögum hverju sinni varðandi umhverfismál og heitum því að hafa sem minnst neikvæð áhrif á umhverfi okkar.
Umhverfismál
Félagið og starfsfólk félagsins stefnir að stöðugt bættum árangri á sviði umhverfisverndar.
Félagið reynir eftir fremsta megni að draga úr umhverfisáhrifum, meðal annars með því að
leitast eftir að leigutakar hlíti lagakröfum og reglugerðum er varða umhverfismál, vekja athygli
leigutaka á umhverfisvænum lausnum sem í boði eru og hvetja þá til að fylgjast með þróun í
umhverfismálum og innleiða nýjungar í rekstur sinn.
Kaldalón leggur áherslu á sjálfbæran rekstur í ákvarðanatöku og stefnumótun. Að starfsemi
félagsins hafi jákvæð áhrif á og efli samfélagið, fari vel með þær auðlindir sem félagið hefur til
umráða, þar með talið á umhverfi og náttúru og að félagið nái efnahagslegum markmiðum
sýnum.
Samfélag
Félagið leggur áherslu á samfélagslega ábyrgð í allri sinni starfsemi. Félagið mótar áherslur
sínar meðal annars með tilliti til efnahagslegra, samfélagslegra og umhverfislegra þátta og
með tilliti til væntinga hagaðila til félagsins.
Félagið leitast við að hámarka jákvæð áhrif sín á samfélagið og skapa þannig virði fyrir
fyrirtækið sjálft, samfélagið og umhverfið.
Mannréttindi
Félagið einsetur sér að uppfylla kröfur laga, reglna og siðferðisviðmiða er snúa að
mannréttindamálum.
Félagið fagnar fjölbreytileika í samfélaginu og á meðal starfsfólksins og samþykkir ekki
mismunun, áreiti eða einelti af nokkru tagi. Metnaður félagsins er fyrir því að vinnustaðurinn
sé öruggur í öllum skilningi.
Fréttir tengdar sjálfbærni
Skógarhlíð 18 hlýtur alþjóðlega umhverfisvottun
Skógarhlíð 18 sem hýsir starfsemi Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins og heilaörvunarmiðstöð (HÖM) hefur hlotið umhverfisvottun BREEAM In-Use. Niðurstaða einkunnar er „mjög góð (e. Very Good)“.
BREEAM vistvottunarkerfið byggir á alþjóðlegum staðli fyrir byggingar í rekstri þar sem óháður vottunaraðili auk BRE Global Limited staðfesta ágæti fasteignar. Úttekt og vottun fasteignarinnar hjálpar rekstraraðilum og fasteignaeigendum við yfirsýn og umbætur á ýmsum þáttum sjálfbærni en þeir helstu eru heilsa og vellíðan starfsfólks og gesta, orkunotkun, innivist, mengun og umhverfisgæði.
Birting á vottaðri umgjörð um græna fjármögnun
Kaldalón hefur birt umgjörð um græna fjármögnun í þeim tilgangi að geta gefið út græn skuldabréf (Green Financing Framework). Markmið útgáfu umgjarðarinnar er að fjármagna
Kaldalón semur við Græna skáta
Kaldalón hefur samið við Græna skáta um að sækja skilagjaldsskyldar umbúðir Kaldalóns. Kaldalón styrkir Græna skáta um skilagjaldsskyldar dósir og flöskur og styður þannig við
Kaldalón aðili að Global Compact
Kaldalón hefur gerst aðili að Global Compact, samtök Sameinuðu þjóðanna um ábyrga viðskiptahætti og stærsta sjálfbærniframtak heims. Global compact er með tíu meginmarkmið í mannréttindum,
Kaldalón styrkir Batahús
Kaldalón hefur frá árinu 2022 stutt við Batahús. Batahús er einstaklingsmiðað bataúrræði við enda afplánunar þar sem einstaklingum er boðin heimilisaðstaða til allt að tveggja
SAND hótel fær alþjóðlega BREEAM umhverfisvottun
SAND hótel og tengdar fasteignir Kaldalóns við Laugaveg 32-36 í Reykjavík hafa hlotið umhverfisvottun BREEAM In-Use. Um er að ræða fyrsta hótelið á Íslandi sem að fær slíka vottun en niðurstaða einkunnar er „mjög góð (e. Very Good)“. Rekstraraðili hótelsins er KEA hótel.