TEYMIÐ
REYNSLUMIKLIR SÉRFRÆÐINGAR Á SVIÐI FASTEIGNA OG FASTEIGNAÞRÓUNAR
Kaldalóni er stýrt af framkvæmdastjóra þess með víðtækum stuðningi frá teymi sérhæfðra fjárfestinga innan GAMMA.
JÓNAS ÞÓR ÞORVALDSSON
MANAGING DIRECTOR
ÁSGEIR BALDURS
FORSTÖÐUMAÐUR SÉRHÆFÐRA FJÁRFESTINGA
Ásgeir hefur yfir 15 ára reynslu af stjórnunar- og stjórnarstörfum hérlendis og erlendis, m.a. annars í framkvæmdastjórn og sem forstjóri VÍS, sem stjórnarformaður Frumherja og Viking Redningstjeneste í Noregi. Þá var hann ráðgjafi og eigandi hjá ráðgjafafyrirtækinu Expectus. Ásgeir er með BSc í viðskiptafræði frá JW University og MBA gráðu frá Háskóla Íslands.
JÓN ÞÓR GUNNARSSON
BYGGINGAVERKFRÆÐINGUR
Jón Þór hefur víðtæka reynslu sem ráðgjafi á sviði mannvirkja, bæði við hönnun, áætlanagerð og verkefnastjórn. Hann starfaði m.a. frá árinu 2010 hjá verkfræðistofunni Mannvit. Helstu verkefni hafa m.a. verið verkefnastjórnun, áætlanagerð, hönnunarstjórn, þróun verkefna, verksamningar og framkvæmdaeftirlit. Jón Þór er M.Sc. í byggingarverkfræði frá Denmarks Tekniske Universitet.
DANÍEL ÞÓR MAGNÚSSON
SJÓÐSTJÓRI
Daníel hefur víðtæka reynslu af rekstri og fjármálum fasteigna, fasteignaþróun og verkefnastjórn. Daníel starfar sem sérfræðingur og sjóðstjóri Fasteignaauða II-VI. Hann hefur lokið námi í viðskiptafræði með áherslu á fjármál ásamt því að hafa lokið námi til löggildar sem verðbréfamiðlari.
SVEINN HREINSSON
SÉRFRÆÐINGUR
Sveinn hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2002, m.a. sem viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði hjá Sparisjóðabanka Íslands hf. og eignaumsýslu Kviku. Sveinn hefur síðustu ár séð um rekstur FÍ fasteignafélags slhf og Foss fasteignafélags slhf. (Höfuðstöðvar OR) ásamt fasteigna í umsjón Slitastjórnar SPB. Sveinn er Cand.oecon. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
.