Vegna umfjöllunar

Vegna þess sem fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 föstudaginn 29. apríl sl. og á vefsvæðinu visir.is sama kvöld vill Kaldalón hf. koma eftirfarandi á framfæri:

Kaldalón hf. er einn hluthafa í Vesturbugt. Það er rangt sem kemur fram í fréttinni að Reykjavíkurborg hafi tilkynnt Vesturbugt ehf. um afturköllun lóðar innan tilskilins frests. Aðilar hafa einsett sér að útfæra tryggingar og veðstöðu helstu haghafa innan nokkurra vikna, og ganga frá útistandandi atriðum, með það að markmiði að uppbygging geti hafist sem fyrst.  

Deila frétt

Fleiri fréttir