Aðalfundur Kaldalón hf. verður haldinn þann 23. mars 2023 kl. 16:00. Fundurinn verður haldinn að Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52.
Framboðsfrestur til stjórnar Kaldalón hf. er runninn út. Eftirtaldir aðilar hafa gefið kost á sér í stjórn félagsins.
- Álfheiður Ágústsdóttir
- Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason
- Haukur Guðmundsson
- Kristín Erla Jóhannsdóttir
- María Björk Einarsdóttir
Þá hafa eftirtaldir aðilar gefið kost á sér sem varamenn í stjórn félagsins.
- Gunnar Henrik Gunnarsson
- Hildur Leifsdóttir
Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna á vefsvæði aðalfundar. Þá hyggst stjórn Kaldalóns hf. setja fram breytingartillögu á kynntri starfskjarastefnu félagsins á aðalfundi, sem sjá má á sérstöku vefsvæði fundarins á kaldalon.is/adalfundur2023.
Nánari upplýsingar veitir Jón Þór Gunnarsson, forstjóri, kaldalon@kaldalon.is.