Kaupum á öllu hlutafé í Hafnagarði ehf. lokið

Vísað er til tilkynningar þann 22.8.2022 vegna kaupa Kaldalóns hf. á öllu hlutafé í Hafnagarði ehf. í áföngum, en Hafnagarður ehf. er eigandi Köllunarklettsvegar 1, Reykjavík.

Eins og fram kemur í framangreindri tilkynningu átti lokagreiðsla viðskiptanna að eiga sér stað eigi síðar en 1. október 2024 með nýju hlutafé útgefnu af Kaldalóni. Aðilar viðskiptanna hafa nú undirritað viðauka við kaupsamning sem felur það í sér að lokagreiðsla vegna kaupa á Hafnagarði ehf. verði greidd með peningum í stað nýs hlutafjár í Kaldalóni. Uppgjörsdagur er 16. september 2024. Kaldalón er því 100% eigandi hlutafjár í Hafnagarði ehf. í samræmi við kaupsamning.  Að öðru leyti er vísað til fyrri tilkynningar.

Jón Þór Gunnarsson, forstjóri

„Það er ánægjulegt að kaupum á gömlu Kassagerðinni sé nú lokið. Í fasteigninni starfar nú fjöldi fyrirtækja með blómlegan og fjölbreyttan rekstur. Viðtökur viðskiptavina hafa verið mjög góðar.

Þá náðist samkomulag að frumkvæði Kaldalóns að lokagreiðsla yrði greidd með peningum í stað greiðslu með nýju útgefnu hlutafé. Það er í samræmi við kynntar áherslur Kaldalóns að hlutafé sem gagngjald í viðskiptum þurfi að endurspegla bókfært virði Kaldalóns.„

Deila frétt

Fleiri fréttir