Í viku 35, frá og með 30. ágúst 2024, keypti Kaldalón hf. 458.823 eigin hluti að kaupvirði kr. 8.671.754 skv. sundurliðun hér á eftir;
Vika | Dagsetning | Tími | Magn | Verð | Kaupverð |
Vika 35 | 30.8.2024 | 10:27 | 26.687 | 18,9 | 504.384 |
Vika 35 | 30.8.2024 | 10:41 | 432.136 | 18,9 | 8.167.370 |
458.823 | 8.671.754 |
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Kaldalóns hf. sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 29. ágúst 2024. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki ná 17.000.000 hluta, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði ekki meiri en kr. 300.000.000. Framkvæmd áætlunarinnar hófst miðvikudaginn 30. ágúst 2024 og mun áætlun vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó ekki lengur en til 31. desember 2024.
Kaldalón hf. átti 17.049.989 eigin hluti fyrir viðskiptin en að þeim loknum 17.508.812 eða sem nemur 1,56% af útgefnum hlutum í félaginu.
Kaldalón hefur keypt samtals 458.823 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,04% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra kr. 8.671.754.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir,
Jón Þór Gunnarsson, forstjóri
[email protected]