Eftirfarandi tillögur voru lagðar fram fyrir hluthafafund Kaldalóns hf. („Kaldalón“ eða „félagið“), sem haldinn var að Grand Hóteli Reykjavík, þann 2. nóvember kl. 16:30.
Tillaga stjórnar um öfuga skiptingu
Á hluthafafundinum var samþykkt tillaga stjórnar Kaldalóns um öfuga skiptingu hluta (e. reverse share split) í félaginu, miðað við hlutfallið 10:1, sem felur í sér að hverjum tíu (10) hlutum í félaginu, þar sem hver hlutur er að nafnverði kr. 1, verði skipt í einn (1) hlut þannig að nafnverð hvers hlutar verði kr. 10. Var stjórn félagsins falið að ákveða nánari dagsetningar í ferlinu að höfðu samráði við fyrirtækjaskrá Skattsins og Kauphöllina.
Stjórn félagsins hefur nú, í samræmi við ákvörðun hluthafafundarins, ákveðið eftirfarandi dagsetningar í ferlinu:
- Síðasti viðskiptadagur fyrir hina öfugu skiptingu verður 6. nóvember 2023
- Fyrsti viðskiptadagur eftir hina öfugu skiptingu verður 7. nóvember 2023
- Réttindadagur hinnar öfugu skiptingar (hin öfuga skipting mun miðast við hlutaskrá félagsins eins og hún verður í lok réttindadags) verður 8. nóvember