Útboð á víxlum

Kaldalón hf. efnir til útboðs á víxlum, mánudaginn 26. febrúar næstkomandi. Boðnir verða til sölu sex mánaða víxlar í nýjum flokki KALD 24 0901. Útboðið er í samræmi við stefnu félagsins um að vera reglulegur útgefandi víxla og skuldabréfa á markaði í gegnum útgáfuramma félagsins.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtunum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum. Félagið áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta. Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins og úthlutun til fjárfesta þegar niðurstaða liggur fyrir þó eigi síðar en fyrir opnun markaða þriðjudaginn 27. febrúar.  

Greiðslu og uppgjörsdagur er fyrirhugaður 1. mars 2024. 

Landsbankinn hf. hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum, þar sem fram koma upplýsingar um nafnverð og flata vexti skal skilað til Landsbankans hf. fyrir kl. 16:00 mánudaginn 26. febrúar  á netfangið: verdbrefamidlun@landsbankinn.is  

Þátttaka í útboðinu er aðeins heimil aðilum sem teljast hæfir fjárfestar skv. e lið 2. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði („lýsingareglugerðin“). Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a, c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. lýsingarreglugerðar sem innleidd var með lögum nr. 14/2020, um sama efni. Grunnlýsing útgáfuramma, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu víxlaflokksins og töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins; kaldalon.is/fjarfestar

Nánari upplýsingar veita:
Sigurbjörg Ólafsdóttir, fjármálastjóri Kaldalóns hf. sigurbjorg.olafsdottir@kaldalon.is
Gunnar S. Tryggvason s: 410 6709 / 821 2090 eða gunnars@landsbankinn.is

Deila frétt

Fleiri fréttir