Fjárfestar

Hlutabréf tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland

Í tilkynningu Kaldalóns hf. („félagið“) 13. nóvember sl. var greint frá því að Nasdaq Iceland hefði samþykkt umsókn félagsins um töku hlutabréfa þess til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Viðskipti með hlutabréf félagsins hefjast á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland frá og með deginum í dag, 16. nóvember 2023.

Kaldalón hf.: Birting viðauka við grunnlýsingu

Kaldalón hf., kt. 490617-1320, hefur birt viðauka við grunnlýsingu dagsetta 7. júlí 2023 sem birt var í tengslum við útgáfuramma skuldabréfa. Viðaukinn er gerður í tengslum við birtingu á lýsingu félagsins vegna fyrirhugaðrar töku allra hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Viðaukinn felur það í sér að lýsing félagsins dagsett 10. nóvember …

Kaldalón hf.: Birting viðauka við grunnlýsingu Read More »

Kaldalón hf.: Nýir samningar um viðskiptavakt

Kaldalón hf. hefur gert nýja samninga við Landsbankann hf. og Fossa fjárfestingarbanka hf. um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum í Kaldalón hf. sem verða skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland þann 16. nóvember næstkomandi.

Tilgangur samninga um viðskiptavaktir er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins á Nasdaq Iceland með það að markmiði að seljanleiki hlutabréfa Kaldalóns aukist, markaðsvirði skapist og verðmyndum hlutabréfanna verði með gagnsæjum og sem skilvirkustum hætti.

Kaldalón hf.: Nasdaq Iceland samþykkir umsókn um töku hlutabréfa Kaldalóns til viðskipta á Aðalmarkaði

Nasdaq Iceland hefur samþykkt umsókn Kaldalóns hf. („félagið“) um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Hlutabréf félagsins verða tekin til viðskipta á Aðalmarkaði þann 16. nóvember n.k. og samhliða tekin úr viðskiptum á First North vaxtarmarkaðinum eftir lokun markaða þann 15. nóvember n.k.  

Birting lýsingar vegna fyrirhugaðrar skráningar á Aðalmarkað Nasdaq Iceland

Kaldalón hf. hefur birt lýsingu vegna fyrirhugaðrar töku allra hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Lýsingin, sem er dagsett 10. nóvember 2023, hefur verið staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Lýsingin er á íslensku og hefur verið birt á vefsvæði Kaldalóns: www.kaldalon.is/fjarfestar. Samhliða staðfestingu og birtingu lýsingar hefur Kaldalón sótt um að hlutabréf félagsins …

Birting lýsingar vegna fyrirhugaðrar skráningar á Aðalmarkað Nasdaq Iceland Read More »

Kaldalón hf.: Fyrsti viðskiptadagur með hluti Kaldalóns eftir öfuga skiptingu

Í tilkynningu Kaldalóns 2. nóvember sl. kom fram að hluthafafundur Kaldalóns hefði samþykkt öfuga skiptingu hluta félagsins í samræmi við tillögu stjórnar auk þess sem framkvæmd öfugu skiptingarinnar var lýst. Í samræmi við fyrri tilkynningu var síðasti viðskiptadagur með hluti í Kaldalóni fyrir öfuga skiptingu hlutanna í gær, 6. nóvember. Í dag, 7. nóvember, verður …

Kaldalón hf.: Fyrsti viðskiptadagur með hluti Kaldalóns eftir öfuga skiptingu Read More »

Kaldalón hf.: Niðurstöður hluthafafundar 2. nóvember 2023 og nánari upplýsingar um öfuga skiptingu hluta

Eftirfarandi tillögur voru lagðar fram fyrir hluthafafund Kaldalóns hf. („Kaldalón“ eða „félagið“), sem haldinn var að Grand Hóteli Reykjavík, þann 2. nóvember kl. 16:30.

Tillaga stjórnar um öfuga skiptingu

Á hluthafafundinum var samþykkt tillaga stjórnar Kaldalóns um öfuga skiptingu hluta (e. reverse share split) í félaginu, miðað við hlutfallið 10:1, sem felur í sér að hverjum tíu (10) hlutum í félaginu, þar sem hver hlutur er að nafnverði kr. 1, verði skipt í einn (1) hlut þannig að nafnverð hvers hlutar verði kr. 10. Var stjórn félagsins falið að ákveða nánari dagsetningar í ferlinu að höfðu samráði við fyrirtækjaskrá Skattsins og Kauphöllina.

Stjórn félagsins hefur nú, í samræmi við ákvörðun hluthafafundarins, ákveðið eftirfarandi dagsetningar í ferlinu:

  • Síðasti viðskiptadagur fyrir hina öfugu skiptingu verður 6. nóvember 2023
  • Fyrsti viðskiptadagur eftir hina öfugu skiptingu verður 7. nóvember 2023
  • Réttindadagur hinnar öfugu skiptingar (hin öfuga skipting mun miðast við hlutaskrá félagsins eins og hún verður í lok réttindadags) verður 8. nóvember

Kaldalón hf.: Boðun hluthafafundar

Stjórn Kaldalóns hf., kt. 490617-1320, Ingólfsstræti 3, 101 Reykjavík („félagið“), boðar til hluthafafundar í félaginu fimmtudaginn 2. nóvember 2023 kl. 16:30. Fundurinn verður haldinn á Grand hótel, Sigtúni 28, 105 Reykjavík.

Kaldalón hf.: Frágangur viðskipta um Klettagarða 8-10 ehf.

Vísað er annars vegar til tilkynningar 10. september sl. þar sem upplýsingar um kaup Kaldalóns hf. á Klettagörðum 8-10 ehf. voru lögð fram og hins vegar til tilkynningar þann 19. september sl. þar sem tillaga stjórnar Kaldalóns hf. um kaup á félaginu Klettagarðar 8-10 ehf. var samþykkt samhljóða á hluthafafundi sama dag.

Aðrir fyrirvarar viðskiptanna hafa nú verið uppfylltir, kaupsamningur undirritaður og allt hlutafé Klettagarða 8-10 ehf. afhent Kaldalóni hf.

Kaldalón hf.: Niðurstöður hluthafafundar 19. september 2023

Eftirfarandi tillaga var lögð fram fyrir hluthafafund Kaldalóns hf., sem haldinn var að Grand Hóteli Reykjavík, þann 19. september kl. 16:30. Kaup félagsins á Klettagörðum 8-10 ehf. lögð fyrir hluthafafund til samþykktar Með vísan til greinar 3.15 í samþykktum Kaldalóns hf. lá fyrir fundinum tillaga um samþykki hluthafa fyrir fyrirhuguðum kaupum Kaldalóns hf. á Klettagörðum …

Kaldalón hf.: Niðurstöður hluthafafundar 19. september 2023 Read More »