Fjárfestar

Útboð á víxlum

Kaldalón hf. efnir til útboðs á víxlum, mánudaginn 26. febrúar næstkomandi. Boðnir verða til sölu sex mánaða víxlar í nýjum flokki KALD 24 0901. Útboðið er í samræmi við stefnu félagsins um að vera reglulegur útgefandi víxla og skuldabréfa á markaði í gegnum útgáfuramma félagsins. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum …

Útboð á víxlum Read More »

Tilkynning frá tilnefningarnefnd

Tilnefningarnefnd Kaldalóns gegnir ráðgefandi hlutverki við val á stjórnarmönnum félagsins og tilnefnir frambjóðendur til stjórnarsetu í félaginu. Nánari upplýsingar um hlutverk tilnefningarnefndar og starfsreglur hennar má finna á vef Kaldalóns.   Tilnefningarnefnd Kaldalóns óskar eftir tillögum að stjórnarmönnum eða tilkynningum um framboð til stjórnarsetu fyrir fyrirhugaðan aðalfund félagsins þann 4. apríl næstkomandi. Óskað er eftir að …

Tilkynning frá tilnefningarnefnd Read More »

Kaldalón hf.: Fyrirhuguð kaup að fjárhæð 8 milljarða á tekjuberandi fasteignum og fasteignum í byggingu

Kaldalón hf. („Kaldalón“ eða „félagið“) hefur að undanförnu ýmist fengið samþykkt kauptilboð eða undirritað samninga um kaup á sex fasteignum á höfuðborgarsvæðinu sem nema samtals um 17.000 fermetrum. Um er að ræða 12.084 fermetra af fasteignum í Hafnafirði og í Reykjavík. Auk þess kaupir félagið þrjár fasteignir í byggingu í Hafnafirði sem eru 4.911 fermetrar að stærð og afhentar eru eftir framvindu næstu 12 mánuði. Þá fylgja viðskiptunum 2.559 fermetra byggingaréttur við Klettagarða í Reykjavík. Aukinn rekstrarhagnaður félagsins er áætlaður um 566 m.kr. á ársgrundvelli eftir afhendingu fasteignanna.

Útgáfa á víxlum- niðurstaða útboðs

Kaldalón hf. hefur lokið sölu á nýjum óveðtryggðum sex mánaða víxlum í flokki, KALD 24 0601. Tilboð bárust fyrir 1.500 milljónir kr. með flötum vöxtum á bilinu 10,65% -10,85% p.a. Seldir voru víxlar að nafnvirði 1.000 milljónir. kr. á 10,79% vöxtum p.a. eða 80 punkta álagi ofan á 6 mánaða REIBOR. 

Útboð á víxlum

Kaldalón hf. efnir til útboðs á víxlum, fimmtudaginn 23. nóvember næstkomandi. Boðnir verða til sölu sex mánaða víxlar í nýjum flokki KALD 24 0601. Útboðið er í samræmi við stefnu félagsins um að vera reglulegur útgefandi víxla og skuldabréfa á markaði í gegnum útgáfuramma félagsins.