Fréttir
Kaldalón hf.: Viðræður við Regin hf. um kaup á fasteignum
Stjórn Kaldalóns hf. („Kaldalón“ eða „félagið“) hefur samþykkt að hefja viðræður við Regin hf. („Reginn“) um möguleg kaup á fasteignum sem telja samanlagt um 47 þúsund fermetra af atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Viðskiptin yrðu í samræmi við yfirlýsta stefnu Kaldalóns um arðbæran vöxt.
Viðræður Kaldalóns og Regins koma til vegna viðræðna Regins og Samkeppniseftirlitsins um möguleg skilyrði í tilefni af valfrjálsu tilboði Regins í hlutafé Eikar fasteignafélags hf. („Eik“). Nái Kaldalón og Reginn saman um viðskiptin yrðu þau meðal annars háð fyrirvörum um að Samkeppniseftirlitið samþykki viðskiptin og að valfrjálst tilboð Regins í hlutafé Eikar gangi eftir. Kaldalón hyggst ekki gefa út nýtt hlutafé verði af viðskiptunum.
Niðurstöður aðalfundar 2024
Eftirfarandi tillögur voru lagðar fyrir aðalfund Kaldalóns hf., sem haldinn var á Grand hótel að Sigtúni 28, Reykjavík, þann 3. apríl kl. 16:00.
Aðalfundur 3. apríl 2024 – framboð til stjórnar
Aðalfundur Kaldalón hf. verður haldinn miðvikudaginn 3. apríl 2024, kl. 16:00. Fundurinn verður haldinn á Grand hótel, Sigtúni 28, 105 Reykjavík.
Framboðsfrestur til stjórnar Kaldalón hf. er runninn út. Eftirtaldir aðilar hafa gefið kost á sér í stjórn félagsins.
Viðskipti aðila sem er nákominn stjórnanda
Sjá meðfylgjandi tilkynningu um viðskipti aðila sem er nákominn stjórnanda í Kaldalóni.
Aðalfundur 3. apríl 2024
Stjórn Kaldalóns hf. boðar til aðalfundar í félaginu miðvikudaginn 3. apríl 2024 kl. 16:00. Fundurinn verður haldinn á Grand hótel, Sigtúni 28, 105 Reykjavík.